Genesis 43:11 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sagði Ísrael faðir þeirra við þá: “Ef svo verður að vera, þá gjörið þetta: Takið af gæðum landsins í sekki yðar og færið manninum að gjöf lítið eitt af balsami og lítið eitt af hunangi, reykelsi og myrru, pistasíuhnetur og möndlur.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði Ísrael faðir þeirra: „Sé það óhjákvæmilegt gerið þá þetta: Takið af því besta sem landið hefur upp á að bjóða og setjið í sekki ykkar og færið manninum að gjöf lítið eitt af balsami og lítið eitt af hunangi, reykelsi og myrru, pistasíuhnetur og möndlur.