Habakkuk 2:19 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Vei þeim, sem segir við trédrumb: “Vakna þú! Rís upp!” - við dumban steininn. Mun hann geta frætt? Nei, þótt hann sé búinn gulli og silfri, þá er þó enginn andi í honum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Vei þér sem segir „vaknaðu“ við tré eða „rístu upp“ við lífvana stein. Veitir hann fræðslu? Vissulega er hann prýddur gulli og silfri en andinn er enginn.