Haggai 1:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá hlýddi Serúbabel Sealtíelsson og Jósúa Jósadaksson æðsti prestur og allt það, er eftir var orðið lýðsins, röddu Drottins Guðs þeirra og orðum Haggaí spámanns, þeim er Drottinn Guð þeirra hafði sent hann með, og lýðurinn óttaðist Drottin.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Serúbabel Sealtíelsson, landstjóri í Júda, og Jósúa Jósadaksson, æðsti prestur, og allir sem eftir voru af þjóðinni, hlýddu þá boðum Drottins, Guðs síns, og orðum Haggaí spámanns þegar Drottinn, Guð þeirra, hafði sent hann til þeirra og menn óttuðust Drottin.