Hebrews 11:5 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Fyrir trú var Enok burt numinn, að eigi skyldi hann dauðann líta. “Ekki var hann framar að finna, af því að Guð hafði numið hann burt.” Áður en hann var burt numinn, hafði hann fengið þann vitnisburð, “að hann hefði verið Guði þóknanlegur.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Fyrir trú var Enok burt numinn til þess að hann skyldi ekki deyja eins og ritað er: „Ekki var hann framar að finna af því að Guð hafði numið hann burt.“ Áður en hann var burt numinn hafði hann fengið þann vitnisburð „að hann hefði verið Guði þóknanlegur“.