Hebrews 8:5 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En þeir þjóna eftirmynd og skugga hins himneska, eins og Móse fékk bendingu um frá Guði, er hann var að koma upp tjaldbúðinni: “Gæt þess,” segir hann, “að þú gjörir allt eftir þeirri fyrirmynd, sem þér var sýnd á fjallinu.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En tjaldbúðin þar sem þeir þjóna er eftirlíking og skuggi hinnar himnesku, eins og Móse fékk bendingu um frá Guði er hann var að koma upp tjaldbúðinni: „Gæt þess,“ segir hann, „að þú gerir allt eftir þeirri fyrirmynd sem þér var sýnd á fjallinu.“