Hosea 10:8 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Óheillahæðirnar skulu eyddar verða, þar sem Ísrael syndgaði, þyrnar og þistlar skulu upp vaxa á ölturum þeirra. Og þá munu þeir segja við fjöllin: “Hyljið oss!” og við hálsana: “Hrynjið yfir oss!”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Fórnarhæðir illskunnar, synd Ísraels, verða eyddar, þyrnar og þistlar munu vaxa yfir ölturu þeirra. Menn munu segja við fjöllin: „Hyljið oss,“ og við hæðirnar: „Hrynjið yfir oss.“