Isaiah 18:7 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Á þeim tíma skulu gjafir verða færðar Drottni allsherjar frá hinum hávaxna og gljáandi lýð, frá lýðnum, sem hræðilegur var þegar frá upphafi vega sinna, frá hinni afar sterku þjóð, sem allt treður undir fótum sér, um hverrar land fljótin renna, - til þess staðar, þar sem nafn Drottins hersveitanna er, til Síonfjalls.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Á þeim tíma verða Drottni allsherjar færðar gjafir frá hinni hávöxnu og gljáandi þjóð, þjóðinni sem allir óttast hvarvetna, þjóðinni sem treður allt niður með ógnarafli og býr í landi sem fljót falla um. Gjafirnar verða færðar til Síonarfjalls þar sem nafn Drottins allsherjar býr.