Isaiah 31:4 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Svo hefir Drottinn við mig sagt: Eins og ljónið eða ljónskálfurinn urrar yfir bráð sinni, þegar hjarðmannahóp er stefnt saman á móti honum, og hann hræðist ekki köll þeirra og lætur ekki hugfallast við háreysti þeirra, eins mun Drottinn allsherjar ofan stíga til þess að herja á Síonfjall og hæð þess.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því að svo segir Drottinn við mig: Eins og ljón eða ljónshvolpur urrar yfir bráð sinni og óttast ekki hóp fjárhirða sem stefnt er gegn honum, skelfist hvorki hróp þeirra né guggnar fyrir háreysti þeirra, eins mun Drottinn allsherjar stíga niður til að herja á Síonarfjall og Síonarhæð.