Isaiah 33:1 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Vei þér, sem eyðir, og hefir þó sjálfur eigi fyrir eyðingu orðið, sem rænir, og hefir þó eigi rændur verið! Þegar þú hefir lokið eyðingunni, skalt þú fyrir eyðingu verða, þegar þú ert hættur að ræna, skalt þú rændur verða.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Vei þér, eyðandi, sem sjálfum hefur ekki verið eytt, vei þér, svikari, sem enginn hefur svikið. Þegar þú hefur lokið við að eyða verður þér eytt og þegar þú hættir að svíkja verður þú sjálfur svikinn.