Isaiah 36:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En marskálkurinn sagði: “Hefir herra minn sent mig til herra þíns eða til þín til þess að flytja þetta erindi? Hefir hann ekki sent mig til þeirra manna, sem þar sitja uppi á borgarveggnum og eiga þann kost fyrir höndum ásamt með yður að eta sinn eiginn saur og drekka þvag sitt?”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði yfirskenkjarinn: „Heldur þú að húsbóndi minn hafi aðeins sent mig til húsbónda þíns og til þín með þessi skilaboð? Eru þau ekki einmitt til fólksins sem situr þarna á borgarmúrnum og mun ásamt yður neyðast til að leggja sér sinn eigin saur til munns og drekka sitt eigið þvag?“