Isaiah 37:24 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þú hefir látið þjóna þína smána Drottin og sagt: ‘Með fjölda hervagna minna steig ég upp á hæðir fjallanna, efst upp á Líbanonfjall. Ég hjó hin hávöxnu sedrustré þess og hin ágætu kýprestré þess. Ég braust upp á efsta tind þess, inn í aldinskóginn, þar sem hann var þéttastur.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þú hæddir Drottin af munni þjóna þinna og sagðir: „Ég hef farið upp á hæstu fjöll, á efsta tind Líbanons, með fjölmarga stríðsvagna. Ég hef höggvið hæstu sedrustrén og voldugustu kýprustrén. Ég hef komið inn í innstu fylgsnin í þéttasta þykkninu.