Isaiah 39:2 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hiskía fagnaði komu þeirra og sýndi þeim féhirslu sína, silfrið og gullið, ilmjurtirnar og hina dýru olíu og allt vopnabúr sitt og allt, sem til var í fjársjóðum hans. Var enginn sá hlutur í höll Hiskía eða nokkurs staðar í ríki hans, að eigi sýndi hann þeim.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hiskía gladdist yfir þessu og sýndi sendiboðunum fjárhirslu sína, silfrið, gullið, balsamið og úrvalsolíuna, vopnabúr sitt og allt annað sem varðveitt var í fjárhirslu hans. Í höll hans eða ríki var enginn sá hlutur sem hann sýndi þeim ekki.