Isaiah 40:26 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hefjið upp augu yðar til hæða og litist um: Hver hefir skapað stjörnurnar? Hann, sem leiðir út her þeirra með tölu og kallar þær allar með nafni. Sökum mikilleiks kraftar hans og af því að hann er voldugur að afli verður einskis þeirra vant.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hefjið upp augun og horfið til himins. Hver hefur skapað allt þetta? Það er hann sem kannar her stjarnanna, allan með tölu, nefnir þær allar með nafni. Þar sem hann er mikill að mætti og voldugur að afli verður engrar vant.