Isaiah 44:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Járnsmiðurinn myndar egg á öxina, tekur hana fram við glóð og lagar hana með hömrunum. Hann býr hana til með hinum sterka armlegg sínum. En svelti hann, þá vanmegnast hann, fái hann ekki vatn að drekka, lýist hann.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Járnsmiður vinnur verk sitt við glóðir, slær smíði sína til með hamri og mótar hana með sterkum armi. Þegar hann hungrar missir hann máttinn, fái hann ekki vatn að drekka þreytist hann.