Isaiah 45:14 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Svo segir Drottinn: Auður Egyptalands og verslunargróði Blálands og Sebainga, hinna hávöxnu manna, skal ganga til þín og verða þín eign. Þeir skulu fylgja þér, í fjötrum skulu þeir koma, og þeir skulu falla fram fyrir þér og grátbæna þig og segja: “Guð er hjá þér einum, enginn annar er til, enginn annar guð.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Svo segir Drottinn: Auður Egyptalands og gróði Kúss og hinir hávöxnu Sabear munu koma til þín og verða þín eign. Þeir munu fylgja þér í fjötrum og falla fram fyrir þér og játa: „Hjá þér einum er Guð og enginn annar er til, enginn annar Guð.“