Isaiah 49:23 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Konungar skulu verða barnfóstrar þínir og drottningar þeirra barnfóstrur þínar. Þeir munu falla til jarðar fram á ásjónur sínar fyrir þér og sleikja duft fóta þinna. Þá munt þú komast að raun um, að ég er Drottinn og að þeir verða ekki til skammar, sem á mig vona.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Konungar munu gæta barna þinna og drottningar þeirra fóstra þau fyrir þig. Þau munu falla jarðar, fram á ásjónur sínar fyrir þér og sleikja rykið af fótum þér. Þá muntu komast að raun um að ég er Drottinn og að þeir sem á mig vona verða ekki til skammar.