Isaiah 66:8 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hver hefir heyrt slíkt? Hver hefir séð slíka hluti? Er nokkurt land í heiminn borið á einum degi, eða fæðist nokkur þjóð allt í einu? Því að óðara en Síon hefir kennt sóttar, hefir hún alið börn sín.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hver hefur heyrt annað eins, hver séð nokkuð þessu líkt? Fæðist land á einum degi, þjóð í einni andrá? Óðar en Síon fékk hríðir fæddi hún syni sína.