Jeremiah 23:16 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Svo segir Drottinn allsherjar: Hlýðið ekki á orð spámannanna, sem spá yður; þeir draga yður á tálar. Þeir boða vitranir, sem þeir sjálfir hafa spunnið upp, en ekki fengið frá Drottni.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Svo segir Drottinn hersveitanna: Hlustið ekki á orð spámannanna. Þeir flytja yður boðskap en þeir blekkja yður, þeir flytja uppspunnar sýnir og ekki af vörum Drottins.