Jeremiah 25:29 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Því sjá, hjá borginni, sem nefnd er eftir nafni mínu, læt ég ógæfuna fyrst ríða yfir, - og þér skylduð sleppa óhegndir? Þér skuluð ekki sleppa óhegndir, því að sverði býð ég út gegn öllum íbúum jarðarinnar - segir Drottinn allsherjar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Sjá, ég hefst þegar handa við að leiða ógæfu yfir borgina sem kennd er við mig. Ættuð þér þá að komast undan? Nei, þér komist ekki undan því að ég býð út sverði gegn öllum íbúum jarðarinnar, segir Drottinn hersveitanna.