Jeremiah 26:19 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hvort deyddi Hiskía Júdakonungur og allur Júdalýður hann? Óttaðist hann ekki Drottin og blíðkaði Drottin, svo að Drottin iðraði þeirrar óhamingju, er hann hafði hótað þeim? En vér erum rétt að því komnir að baka oss mikla óhamingju!”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Létu Hiskía Júdakonungur og allir Júdamenn taka hann af lífi? Óttaðist hann ekki öllu heldur Drottin svo að hann mildaði auglit Drottins sem hætti við að senda þeim þá ógæfu sem hann hafði hótað? En vér erum að því komnir að kalla ógæfu yfir sjálfa oss.“