Jeremiah 26:21 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En er Jójakím konungur og allir kappar hans og allir höfðingjarnir spurðu orð hans, leitaðist konungur við að láta drepa hann. En er Úría frétti það, varð hann hræddur, flýði burt og fór til Egyptalands.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar Jójakím konungur, allir herforingjar hans og hirðmenn heyrðu um ræður hans leitaðist konungur við að ráða hann af dögum. En þegar Úría frétti það varð hann hræddur og flýði og komst til Egyptalands.