Jeremiah 3:16 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Á þeim dögum, þegar yður fjölgar og þér verðið frjósamir í landinu - segir Drottinn -, þá munu menn eigi framar segja: “Sáttmálsörk Drottins!” Hún mun engum í hug koma, og þeir munu ekki minnast hennar né sakna hennar, né heldur munu menn framar búa aðra til.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar yður fjölgar og þér verðið frjósamir í landinu, segir Drottinn, verður ekki lengur talað um sáttmálsörk Drottins. Hún mun ekki koma neinum í hug, enginn mun minnast hennar, enginn sakna hennar og engin önnur verður gerð.