Jeremiah 30:10 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Óttast þú ekki, þjónn minn Jakob - segir Drottinn - og hræðst þú ekki, Ísrael, því að ég frelsa þig úr fjarlægu landi og leysi niðja þína úr landinu, þar sem þeir eru herleiddir, til þess að Jakob hverfi heim aftur og njóti hvíldar og búi óhultur, án þess nokkur hræði hann.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Óttast ekki, þjónn minn, Jakob, segir Drottinn, og lát ekki hugfallast, Ísrael. Ég mun sjálfur bjarga þér úr fjarlægu landi, niðjum þínum úr landinu þar sem þeir eru útlagar. Jakob mun snúa heim og næðis njóta. Hann mun búa þar óhultur og enginn ógna honum.