Jeremiah 32:8 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Hanameel frændi minn kom til mín í varðgarðinn, eins og Drottinn hafði fyrir sagt, og sagði við mig: ‘Kaup þú akur minn í Anatót, sem er í Benjamínslandi, því að þú átt erfða- og innlausnarréttinn - kaup þú hann!’ Þá sá ég, að það var orð frá Drottni,
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hanameel, sonur föðurbróður míns, kom síðan til mín í garð varðliðsins eins og Drottinn hafði sagt. Hann sagði við mig: „Kauptu akur minn í Anatót í landi Benjamíns. Þar sem þú hefur innlausnarskylduna samkvæmt eignarréttinum skaltu kaupa hann.“ Þá skildi ég að þetta voru boð frá Drottni