Jeremiah 34:14 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
“Að sjö árum liðnum skuluð þér hver og einn gefa lausan hebreskan bróður yðar, sem kann að hafa selt sig þér. Í sex ár skal hann vera þræll þinn, en síðan skalt þú láta hann lausan frá þér fara.” En feður yðar hlýddu mér ekki og lögðu ekki við eyrun.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
„Sjöunda hvert ár skal sérhver yðar leysa úr ánauð hebreskan ættbróður sinn sem hefur selt sig þér. Hann skal vera þræll þinn í sex ár, því næst skaltu leysa hann úr ánauð.“ En feður yðar hlýddu mér ekki og lögðu ekki við hlustir.