Jeremiah 34:17 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Fyrir því segir Drottinn svo: Þér hafið eigi hlýtt mér um að boða frelsi, hver sínum bróður og hver sínum náunga. Sjá, ég ætla því að boða yður frelsi - segir Drottinn - svo að þér verðið ofurseldir sverðinu, drepsóttinni og hungrinu, og ég gjöri yður að grýlu öllum konungsríkjum jarðar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því segir Drottinn: Þér hafið ekki hlýtt mér. Enginn yðar hefur lýst því yfir að hann leysi ættbróður sinn og landa úr ánauð. Ég boða yður lausn, segir Drottinn, lausn með sverði, drepsótt og hungri. Ég geri yður skelfilega í augum allra konungsríkja jarðar.