Jeremiah 36:32 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Jeremía tók aðra bókrollu og fékk hana Barúk skrifara Neríasyni, og hann skrifaði á hana af munni Jeremía öll orð bókar þeirrar, er Jójakím Júdakonungur hafði brennt í eldi, - en auk þeirra var enn fremur bætt við mörgum orðum líkum hinum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá tók Jeremía aðra bók og fékk hana Barúk Neríasyni skrifara. Hann ritaði á bókina það sem Jeremía las fyrir, allt það sem staðið hafði á bókinni sem Jójakím Júdakonungur hafði brennt. Enn fremur var bætt við miklum boðskap sem líktist hinum.