Jeremiah 37:21 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Síðan var Jeremía settur í varðhald í varðgarðinum að boði Sedekía konungs og honum gefinn brauðhleifur á degi hverjum úr bakarastrætinu, uns allt brauð var uppgengið í borginni. Og þannig sat Jeremía í varðgarðinum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Sedekía konungur skipaði þá svo fyrir að Jeremía yrði hafður í haldi í forgarði varðliðsins. Hann fékk daglega brauð úr bakaragötunni þar til ekkert brauð var lengur til í borginni.