Jeremiah 4:31 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Já, hljóð heyri ég, eins og í jóðsjúkri konu, angistaróp, eins og í konu, sem er að ala fyrsta barnið, óp dótturinnar Síonar, sem stendur á öndinni af kvölum og breiðir út hendurnar: “Ó, vei mér, því að örmagna hnígur sál mín fyrir morðingjum.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ég heyri vein eins og frá jóðsjúkri konu, lík neyðarópum frumbyrju, það eru óp dótturinnar Síonar sem stendur á öndinni. Hún teygir fram hendurnar: Vei mér. Það er úti um mig. Ég fell fyrir hendi morðingja.