Jeremiah 42:18 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Því að svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Eins og reiði minni og heift var úthellt yfir Jerúsalembúa, svo skal og heift minni úthellt verða yfir yður, er þér farið til Egyptalands, og þér skuluð verða að formæling, að skelfing, að bölbænarformála og að háðung, og eigi framar sjá þennan stað.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því að svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Á sama hátt og heift mín og reiði steyptist yfir Jerúsalem mun reiði mín steypast yfir yður þegar þér farið til Egyptalands. Þér verðið efni bölbæna og ímynd hryllings, bölvunar og smánar og þennan stað sjáið þér aldrei framar.