Jeremiah 44:28 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En þeir, sem komast undan sverðinu, skulu hverfa aftur frá Egyptalandi til Júda, en aðeins fáir menn. Og allar leifar Júda, þeir er komnir eru til Egyptalands, til þess að dveljast þar sem flóttamenn, skulu komast að raun um, hvers orð rætist, mitt eða þeirra!
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Örfáir sem komast undan sverðinu munu halda frá Egyptalandi heim til Júda. Allir sem eftir eru af Júdamönnum og eru komnir til Egyptalands að leita þar hælis munu komast að raun um hvort það er mitt orð eða þeirra sem rætist.