Jeremiah 50:29 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Bjóðið skyttum út gegn Babýlon, öllum þeim sem benda boga! Setjið herbúðir allt í kringum hana! Látið engan komast undan! Gjaldið henni eftir verkum hennar! Gjörið við hana að öllu svo sem hún hefir til gjört, því að hún hefir ofmetnast gegn Drottni, gegn Hinum heilaga í Ísrael.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Kveðjið til bogaskyttur gegn Babýlon, alla sem benda boga. Setjist um hana á allar hliðar, enginn skal komast undan. Gjaldið Babýlon verk hennar, farið með hana eins og hún fór með aðra. Þar sem hún hreykti sér gegn Drottni, gegn Hinum heilaga í Ísrael,