Jeremiah 50:9 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Sjá, ég læt upp rísa safn mikilla þjóða frá norðlægum löndum, er fer á móti Babýlon. Þær munu skipa sér móti henni. Þaðan mun hún unnin verða. Örvar þeirra eru eins og giftusöm hetja, er ekki hverfur aftur við svo búið.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því að ég stofna sjálfur bandalag mikilla þjóða og leiði það gegn Babýlon, frá landinu úr norðri. Það fylkir sér gegn Babýlon og úr norðri verður hún unnin. Örvar þess eru sem giftusöm hetja sem ekki snýr aftur án þess að hafa drýgt dáð.