Job 2:11 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þegar vinir Jobs þrír fréttu, að öll þessi ógæfa væri yfir hann komin, þá komu þeir hver frá sínum stað, þeir Elífas Temaníti, Bildad Súíti og Sófar Naamíti, og töluðu sig saman um að fara og votta honum samhryggð sína og hugga hann.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar þrír vinir Jobs fréttu um allt það böl sem hann hafði orðið fyrir héldu þeir hver um sig að heiman, Elífas frá Teman, Bildad frá Súa og Sófar frá Naama. Þeir tóku sig saman um að fara og sýna honum samúð og hugga hann.