Job 2:3 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Drottinn mælti til Satans: “Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar. Og enn þá er hann staðfastur í ráðvendni sinni, og þó hefir þú egnt mig gegn honum til að vinna honum tjón án saka.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá spurði Drottinn Satan: „Veittir þú athygli Job, þjóni mínum? Enginn maður á jörðinni er jafnráðvandur og réttlátur og hann. Hann óttast Guð og forðast illt. Hann er staðfastur í ráðvendni sinni þó að þú hafir að tilefnislausu egnt mig gegn honum til að gera út af við hann.“