Job 42:11 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá komu til hans allir bræður hans og allar systur hans og allir þeir, er áður höfðu verið kunningjar hans, og neyttu máltíðar með honum í húsi hans, vottuðu honum samhryggð sína og hugguðu hann út af öllu því böli, sem Drottinn hafði látið yfir hann koma. Og þeir gáfu honum hver einn kesíta og hver einn hring af gulli.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Síðan komu allir bræður Jobs og systur og allir kunningjar hans frá fyrri tíð og snæddu með honum í húsi hans, sýndu honum samúð vegna alls þess böls sem Drottinn hafði látið koma yfir hann. Þau hugguðu hann og sérhvert þeirra gaf honum einn kesíta og nefhring úr gulli.