Jonah 1:5 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Skipverjar urðu hræddir og hét hver á sinn guð. Og þeir köstuðu reiða skipsins í sjóinn til þess að létta á skipinu. En Jónas hafði gengið ofan í neðsta rúm í skipinu, lá þar og svaf vært.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Skipverjar urðu skelfingu lostnir og ákallaði hver sinn guð. Þeir köstuðu farminum fyrir borð til að létta skipið en Jónas hafði þegar farið undir þiljur, lagst þar fyrir og svaf vært.