Joshua 1:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
þar til er Drottinn veitir bræðrum yðar hvíld eins og yður, og þeir hafa líka tekið til eignar land það, sem Drottinn, Guð yðar, gefur þeim. Þá skuluð þér snúa aftur í eignarland yðar og setjast þar að, í landinu, sem Móse, þjónn Drottins, gaf yður hinumegin Jórdanar, austanmegin.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
þar til Drottinn hefur veitt bræðrum ykkar hvíld eins og ykkur og þeir hafa tekið landið til eignar sem Drottinn, Guð ykkar, fær þeim. Þá getið þið snúið aftur og tekið til eignar ykkar eigið land sem Móse, þjónn Drottins, fékk ykkur handan við Jórdan þar sem sólin kemur upp.“