Joshua 10:28 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þennan sama dag vann Jósúa Makeda og tók hana herskildi, og hann bannfærði konung hennar, svo og borgina og alla þá menn, sem í henni voru. Lét hann engan komast undan, og með konunginn í Makeda fór hann eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þennan sama dag vann Jósúa Makkeda. Hann hjó íbúa hennar og konung með sverðseggjum. Hann helgaði borgina banni og allt lifandi í henni. Hann lét engan flóttamann sleppa og fór með konunginn í Makkeda eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.