Joshua 10:6 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Gíbeonmenn sendu þá til Jósúa í herbúðirnar í Gilgal, og létu segja honum: “Slá ekki hendi þinni af þjónum þínum. Kom sem skjótast oss til hjálpar og veit oss fulltingi, því að allir konungar Amoríta, þeirra er búa í fjalllendinu, hafa safnast saman í móti oss.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Síðan sendu mennirnir í Gíbeon til Jósúa í herbúðunum í Gilgal og létu skila til hans: „Slepptu nú ekki hendinni af þjónum þínum. Skundaðu upp eftir til okkar, bjargaðu okkur og veittu okkur lið því að allir konungar Amoríta frá fjalllendinu hafa gert bandalag gegn okkur.“