Joshua 2:1 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Jósúa Núnsson sendi tvo njósnarmenn leynilega frá Sittím og sagði: “Farið og skoðið landið og Jeríkó!” Þeir fóru og komu í hús portkonu einnar, er Rahab hét, og tóku sér þar gistingu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jósúa Núnsson sendi nú tvo njósnara með leynd frá Sittím. „Farið,“ sagði hann, „kannið landið, þó einkum Jeríkó.“ Þeir fóru og komu í hús skækju einnar sem hét Rahab og gistu þar.