Joshua 22:8 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
og sagði við þá: “Hverfið nú aftur til tjalda yðar með mikil auðæfi, mjög mikinn fénað, með silfur og gull, eir og járn, og með mjög mikið af klæðnaði; miðlið bræðrum yðar nokkru af því, er þér hafið tekið að herfangi af óvinum yðar.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
sagði hann: „Hverfið nú aftur heim til tjalda ykkar með mikinn auð, stórar hjarðir búfjár, silfur og gull, eir, járn og mikið af klæðnaði. Skiptið með bræðrum ykkar herfanginu sem þið hafið tekið af fjandmönnum ykkar.“