Joshua 5:6 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Í fjörutíu ár fóru Ísraelsmenn um eyðimörkina, uns allt það fólk, allir vígir menn, er farið höfðu af Egyptalandi, voru dánir, því að þeir hlýddu ekki raust Drottins. Þess vegna hafði Drottinn svarið þeim, að þeir skyldu ekki fá að sjá landið, sem hann sór feðrum þeirra að gefa oss, - land, sem flýtur í mjólk og hunangi.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Í fjörutíu ár gengu Ísraelsmenn um eyðimörkina uns þjóðin öll var dáin, allir vopnfærir menn sem höfðu farið frá Egyptalandi. Þeir höfðu ekki hlýtt rödd Drottins. Þess vegna hafði Drottinn svarið að sýna þeim ekki landið sem hann hafði heitið forfeðrum þeirra að gefa okkur, land sem flýtur í mjólk og hunangi.