Joshua 6:20 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá æpti lýðurinn heróp, og þeir þeyttu lúðrana. Og er lýðurinn heyrði lúðurhljóminn, æpti lýðurinn heróp mikið. Hrundi þá múrinn til grunna, en lýðurinn gekk inn í borgina, hver þar sem hann var staddur. Þannig unnu þeir borgina.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Nú æpti fólkið heróp og hafurshornin voru þeytt. Þegar fólkið heyrði hornablásturinn æpti það heróp mikið og borgarmúrinn hrundi til grunna. Fólkið fór þá inn í borgina, hver þar sem hann var staddur. Þannig unnu þeir borgina.