Joshua 7:14 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Á morgun snemma skuluð þér leiddir verða fram eftir ættkvíslum yðar, og sú ættkvísl, sem Drottinn lætur hlut falla á, skal ganga fram eftir kynþáttum, og sá kynþáttur, sem Drottinn lætur hlut falla á, skal ganga fram eftir ættum, og af þeirri ætt, sem Drottinn lætur hlut falla á, skulu karlmennirnir ganga fram, hver út af fyrir sig.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Í fyrramálið skuluð þið ganga fram eftir ættbálkum ykkar. Síðan skal sá ættbálkur, sem Drottinn velur, ganga fram eftir ættum sínum. Þá skal sú ætt, sem Drottinn velur, ganga fram eftir fjölskyldu og að lokum skal sú fjölskylda, sem Drottinn velur, ganga fram, hver maður fyrir sig.