Joshua 9:24 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá svöruðu þeir Jósúa og sögðu: “Oss þjónum þínum var frá því sagt, að Drottinn, Guð þinn, hefði heitið Móse, þjóni sínum, að gefa yður allt landið, en eyða öllum landsbúum fyrir yður. Fyrir því urðum vér hræddir um líf vort fyrir yður og tókum því þetta til bragðs.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir svöruðu Jósúa: „Þjónum þínum var skilmerkilega greint frá því að Drottinn, Guð þinn, hefði lagt fyrir Móse, þjón sinn, að gefa ykkur allt landið og ryðja öllum íbúunum úr vegi. Þess vegna óttuðumst við um líf okkar sakir ykkar og þess vegna gerðum við þetta.