Jude 1:12 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þessir menn eru blindsker við kærleiksmáltíðir yðar, er þeir sitja að veislum með yður og háma í sig blygðunarlaust. Þeir eru vatnslaus ský, sem rekast fyrir vindum, tré, sem bera ekki ávöxt að hausti, tvisvar dauð og rifin upp með rótum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir eru smánarblettur á kærleiksmáltíðum ykkar er þeir sitja að veislum með ykkur og háma í sig blygðunarlaust og hugsa aðeins um eigin hag. Þeir eru eins og vatnslaus ský sem rekast fyrir vindum, eins og tré sem bera ekki ávöxt að hausti, steindauð og rifin upp með rótum.