Judges 16:3 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En Samson svaf til miðrar nætur. En um miðja nótt reis hann á fætur, þreif hurðirnar á borgarhliðinu, ásamt báðum dyrastöfunum, og kippti þeim upp ásamt slagbrandinum og lagði á herðar sér og bar þær efst upp á fjallið, sem er gegnt Hebron.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Samson svaf til miðnættis en um miðja nótt reis hann á fætur, þreif hurðirnar á borgarhliðinu ásamt báðum dyrastöfunum, kippti þeim upp ásamt slagbrandinum og lagði á herðar sér og bar þær efst upp á fjallið sem er gegnt Hebron.