Judges 21:5 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Því næst sögðu Ísraelsmenn: “Mun nokkur vera sá af öllum ættkvíslum Ísraels, er ekki hafi komið upp hingað til Drottins með söfnuðinum?” Því að það hafði verið föstum svardögum bundið, að hver sá, er ekki kæmi upp til Drottins í Mispa, sá hinn sami skyldi lífi týna.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Síðan sögðu Ísraelsmenn: „Skyldi nokkur sá vera af öllum ættkvíslum Ísraels að hann hafi ekki komið upp hingað til Drottins með söfnuðinum?“ Það hafði verið föstum svardögum bundið að hver sá sem ekki kæmi upp til Drottins í Mispa skyldi týna lífinu.