Judges 4:9 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hún svaraði: “Víst mun ég með þér fara. En enga frægð munt þú hafa af för þessari, sem þú fer, því að Drottinn mun selja Sísera í konu hendur.” Síðan tók Debóra sig upp og fór með Barak til Kedes.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hún svaraði: „Víst mun ég fara með þér þótt þú munir enga sæmd hljóta af þessari för þinni því að Drottinn mun selja Sísera í hendur konu.“ Síðan fór Debóra af stað og hélt með Barak til Kedes.